Ferlið

Hér fyrir neðan finnur þú leiðbeiningar um hvernig þú bókar bás og hvaða þjónustu þú velur 

  • Almennleiga / Slá

  • Lúxusleiga

Almenn leiga á bás eða barnaslá

Þú bókar bás. Þú velur þér básategund fullorðinsbás, barnabás eða barnaslá í 1, 2, 3 eða 4 vikur. Þú velur upphafsdag leigu og hvaða bás þú vilt. Næst fyllir þú út persónuupplýsingar og greiðir. Þú færð sendan tölvupóst með upplýsingum um það hvernig þú skráir þig inn á „Mínar síður“.

Barnaslá hentar vel fyrir fatnað af börnum ca. 10 ára og yngri. Þar er sama hengipláss og í básum og ein hilla.Barnabás hentar vel ef viðkomandi hyggst selja leikföng, bækur, spil o.s.frv. ásamt fatnaði.Fullorðinsbásar koma í tveimur týpum. Annars vegar með þremur hillum, tveimur neðst og einni að ofan, og hins vegar tveimur hillum, einni neðst og einni að ofan. Bás með tveimur hillum hentar betur fyrir síðar flíkur, kjóla, kápur, frakka o.s.frv. Svæðin eru merkt í korti verslunar þar sem bás er valinn.

Lúxusleiga

Þú bókar bás

Þú velur þér básategund, fullorðins- eða barnabás í lúxusleigu. Þú velur þér lengd timabils 14 eða 28 daga. Þú velur upphafsdag leigu og hvaða bás þú vilt. Næst fyllir þú út persónuupplýsingar og greiðir. Þú færð sendan tölvupóst með upplýsingum um það hvernig þú skráir þig inn á „Mínar síður“.

Hún hefur kost á því að ákveða hvað hver vara eigi að kosta. Þá ferðu inná „Mínar síður“ og skráir vörur með góðri lýsingu, stærð og verð t.d. “Blá Ralph Lauren skyrta M 10.000 kr.”. Þú mátt skrá einhverjar vörur þó þú skráir ekki allar. Við sjáum þá um að skrá restina.

Annar möguleiki er að setja vörur sem eiga að vera á sama verði í sér poka/kassa og merkja t.d. 8 flíkur saman 6000kr hver vara, 14 flíkur 12.000kr hver vara.

Þriðji möguleikinn er að starfsfólk ákveði verðlagningu á vörunum þínum. Ef að þú ákveður að við verðleggjum vörurnar þá veitir þú okkur skilyrðislaust leyfi til að ákveða verð á hverja vöru. Þú verður að senda okkur tölvupóst um hvaða leið á verðlagningu þú velur. 

Þú færð svo tölvupóst hvenær við viljum fá pokann þinn til okkar. Þú annað hvort skutlar honum til okkar ef þú hefur tök á því eða sendir hann með póstinum eða einhverjum sem á leið hjá. 

Við setjum verðmiða og þjófavarnir(yfir 2.500kr) á vörurnar, komum vörum snyrtilega fyrir á básnum þínum, fyllum á básinn reglulega, tökum til daglega, tökum niður bás í lokin, pökkum vörum og geymum í allt að 7 daga án gjalds.

Á meðan á leigu stendur getur þú fylgst með sölunni þinni á “mínum síðum”, bætt við vörum eða fjarlægt þær eins og þér hentar. Í Lúxusleigu verður þú að senda okkur tölvupóst ef þú vilt að við fjarlægjum vöru af básnum þínum eftir að þú hefur fjarlægt hana úr kerfinu.

  • Skráning á söluvörum

    Skráning á söluvörum

    Þegar þú hefur skráð þig inn á „Mínar síður“ skráir þú vörur með því að fara í „vörur“ og ýta á „bæta við vöru“. Þú lýsir flíkinni eða vörunni þinni með greinagóðri lýsingu t.d. „Blá Ralph Lauren skyrta“, merkir inn stærð vörunnar og síðan skráir þú það verð sem þú vilt. 

    Söluvörur í bás 33 - Í bás 33 er í boði að selja hvers kyns fatnað og fylgihluti sem tengjast fatnaði. Dæmi um fylgihluti eru skór, töskur, skart, sólgleraugu. Í barnabásum er í boði að selja leikföng og bækur sem passa í básinn. Sömuleiðis er í boði að selja stærri barnavörur líkt og bílstóla, barnavagna og aðrar stórar varnarvörur. Allar vörur eru á ábyrgð eiganda vörunnar. Við mælum með þjófavörnum á vörur verðmetnar yfir 2.500 kr.

    Þú mætir í verslun okkar að Smiðjuvöllum 32 til að setja upp básinn þinn. Þú hefur rétt á básnum eða slánni deginum fyrir upphaf tímabilsins klukkutíma fyrir lokun (17:00 á virkum dögum og 15:00 um helgar) eða klukkan 11:00 sama dag og leigutímabil hefst. Við komuna afhendum við þér verðmiða og merkibyssu, svo hefur þú aðgang að fataslá, merkimiðum, þjófavörnum og herðartrjám (venjuleg,buxna og barna) til þess að undirbúa þínar vörur í rólegheitum. Síðan setur þú vörurnar þínar í þinn bás. Við reynum eftir fremsta megni að halda básnum snyrtilegum en við mælum með að þú mætir reglulega, til að fylla á eða taka til í básnum þínum áður en þú sækir svo óseldar vörur að lokinni básaleigu.

    Á meðan á leigu stendur getur þú fylgst með sölunni þinni á “mínum síðum”, bætt við vörum eða fjarlægt þær eins og þér hentar.