• Almennir skilmálar

    bás 33 leigir út bása til viðskiptavina sem vilja selja notaðan eða ónotaðan fatnað og fylgihluti. Hver viðskiptavinur fær afnot af bás með fataslá og hillu og eins má setja hluti í sameiginleg svæði eins og pláss leyfir. Við erum með sameiginlega slá fyrir þykkar yfirhafnir og útiföt, bæði barna og fullorðins. Í bás 33 fylgir hverri leigu aðgangur að slá við uppsetningu, herðatré (fullorðins, buxna og barna), merkimiðar, þjófavarnir og límrúllur.

    Hver básaleigjandi ber ábyrgð á sínum bás.  Alltaf er hægt að koma og fylla á bása og við mælum með að taka myndir af vörum og auglýsa á samfélagsmiðlum.  Starfsfólk bás 33 reynir eftir fremsta megni að halda öllum básum sem snyrtilegustum.

  • Verð

    Verðin sem gefin eru upp á heimasíðunni eru með virðisaukaskatti.

  • Þóknun

    Þóknun, 25% á fullorðinsbás og 22% á barnabás og -slá, verður sjálfkrafa dregin frá samanlagðri heildarsölu, áður en söluhagnaður er greiddur út til leigjenda bása, 40% í lúxusþjónustu.

  • Afbókun á bás

    Ef að þú getur ekki nýtt þér básinn þarf afbókun að berast með að lágmarki 14 daga fyrirvara, fyrir fyrsta dag leigu til að eiga rétt á endurgreiðslu.

  • Leigutímabil

    Leigutímabil fyrir Almenna leigu á bás eða slá er frá 1 viku til 4 vikna. Ef básaleiga er bókuð yfir tímabil þar sem lokað er í verslun eða frídagar eru, telja þeir dagar ekki með í heildardögum tímabils. Ef engar vörur eru komnar í verslun kl 14 á fyrsta degi básaleigu og básaleigjandi hefur ekki haft samband, þá er bás 33 heimilt að endurleigja básinn.

    Fyrir Lúxus básaleigu er leigutímabil 2 eða 4 vikur.

  • Breytingar á verði eða afsláttur

    Alltaf er hægt að breyta verðum og er það gert inn á “Mínum síðum” undir “vörur”, þar velurðu vöruna og breytir verði. Ef þú breytir verði á vöru þarf að koma sem fyrst í verslun og fá nýjan merkimiða til að setja á vöruna. Verð vöru uppfærist strax í sölukerfinu og því selst varan samkvæmt því. Miðar sem búið er að strika yfir eru ógildir og seljast samkvæmt verði í sölukerfi. Breytingu á verði á vöru í lúxus básaleigu þarf að tilkynna með tölvupósti svo starfsfólk geti uppfært merkimiðann.

    Ef þú vilt gefa afslátt á vörum í bás meðan á leigutímabilinu stendur er best að hafa samband við verslun eða í gegnum netfangið bas33@bas33.is og við setjum afslátt á básinn. Við erum með 25%, 50% og 75% afsláttarmiða til merkingar.

    Ef þú vilt ekki setja ákveðnar vörur á afslátt getur þú fjarlægt þær úr sölu áður en þú virkjar afsláttinn.

  • Skráning á söluvörum

    Þegar þú hefur skráð þig inn á „mínar síður“ skráir þú vörur með því að fara í „vörur“ og ýta á „bæta við vöru“. Þú lýsir flíkinni eða vörunni þinni eins og þér þykir best t.d. „Blá Ralph Lauren skyrta“ og síðan skráir þú það verð sem þú vilt.

  • Auglýsingar á vörum

    bás 33 hvetur básaleigjendur til að taka myndir og auglýsa vörur og básanúmer á samfélagsmiðlum og á facebook síðunni okkar “Til sölu í bás 33”.

  • Þjófavarnir, þjófnaður og skemmdir á vörum

    Þjófavarnir eru í boði fyrir básaleigjendur. Gott viðmið er að setja þjófavörn á vörur verðlagðar 2.000kr og yfir, vöruverndarhlið er við útgang verslunar. Eins er Starfsfólk verslunar ávallt með opin augu fyrir búðarþjófnaði. bás 33 ber ekki ábyrgð á stolnum, týndum né skemmdum vörum. Verði vörur fyrir vatns- eða eldstjóni í tilfelli af eldsvoða eða vatnsskaða er bás 33 ekki bótaskyld. Innbústrygging básaleigjanda bætir hugsanlega bruna/vatnsskaða eða þjófnað – bás 33 mælir með að básaleigjandi hafi samband við sitt tryggingafélag til að fá frekari upplýsingar um það.

  • Eignaréttur og vöruskilmálar

    Básaleigjandi er að öllu leyti ábyrgur fyrir sínum bás og vörunum sem í honum eru. Óheimilit er að selja falsaðar, ólöglegar eða skaðlegar/hættulegar í bás 33. Vörur sem verslun telur ekki við hæfi geta verið fjarlægðar af starfsmönnum án viðvörunar.

    bás 33 áskilur sér rétt að hafna uppsetningu eða fjarlægja vörur úr sölu meðan á sölutímabili stendur ef starfsfólk telur vörur ekki mæta kröfum bás 33. Þetta á við um til dæmis ástand vöru, hvort varan sé hrein, heilleg, götót, ónýt eða gölluð að einhverju leyti. Vörur sem falla ekki undir fatnað eða fylgihluti geta verið fjarlægðar af starfsfólki án viðvörunar.Básaleiga bás 33 er með það að markmiði að endurselja notaðar eða ónotaðar vörur sem nýtast aftur og aftur, og minnka þar með fatasóun.

    Vara í bás 33 er keypt í því ástandi sem hún er í, það er á ábyrgð kaupanda að skoða ástand vöru áður en hún er keypt. Starfsfólk hefur ekki heimild til að taka við vöru eftir að hún hefur verið keypt, gefa afslátt eða breyta verði. Ekki er hægt að skila vörum í bás 33 undir neinum kringumstæðum.

  • Skipulag, áfylling og hámarksvörur á bás

    Básaleigjandi er ábyrgur fyrir sínum bás/slá á meðan á leigu stendur. Starfsfólk bás 33 tekur til í básum eftir fremsta megni. Við mælum eindregið með að þú komir annað slagið að fylla á bás og skipuleggja hann eftir þinni hentisemi. Í bás 33 er mælt með að hafa ekki fleiri en 50 flíkur á slá í hvert sinn. Það eykur sölu að viðskiptavinir geti skoðað flíkur á aðgengilegan hátt. ATH ef þú ert með Lúxus þjónustu þá sér starfsfólk bás 33 alfarið um allt slíkt.

  • Tapað/Fundið

    Ef að vara finnst án merkimiða þá er hún sett á „tapað/fundið“ svæði. Básaleigjendur geta alltaf fengið að skoða svæðið ef vara týnist á meðan básaleigu stendur, við geymum vörur án merkimiða í „tapað/fundið“ í 15 daga eftir það telst hún eign bás 33. Ef starfsfólk rekst á vöru sem er með merkimiða eftir básaleigu er lokið sendum við viðkomandi tölvupóst er þá hægt að sækja vöruna innan 7 daga, eftir það telst hún eign bás 33 og verður slíkum vörum komið áfram til Búkollu/Rauða kross.

  • Í lok básaleigu

    Almenn básaleiga: Í lok básaleigu, á síðasta degi sölu, kemur þú að ganga frá básnum þínum og sækja vörur sem eftir eru. Mán-Fös kemur þú klukkan 17:00 en klukkan 15:00 um helgar. Næsti básleigjandi á rétt á básnum klukkustund fyrir lokun daginn áður en hans básaleiga hefst.

    Ef vörur eru ekki sóttar innan þess ramma og ekki er látið vita teljast þær eign bás 33 kemur þeim áfram til Rauða kross/Búkollu.

    Mikilvægt er að þegar þú kemur að þú gefir þig fram við starfsmann í afgreiðslu og látir vita að þú sért að tæma bás. Vinsamlegast hafið skilríki meðferðis. Starfsfólk leiðbeinir básaleigjanda um að sækja slá, setja vörur sínar á hana og koma með slána að afgreiðsluborði, þar sem starfsfólk fer yfir verðmiða á vörunum og fjarlægir þjófavarnir. 

    Komist þú ekki á tilsettum tíma er hægt að semja við starfsfólk bás 33 fyrir klukkan 16 daginn sem básaleigu lýkur, um að tæma bás fyrir leigjanda gegn 3000kr gjaldi. Hægt er að sækja um þessa þjónustu með því að senda tölvupóst á bas33@bas33.is eða að hafa samband við starfsfólk verslunnar.  Ef ekkert er um samið, tekur starfsfólk bás 33 niður básinn gegn 5000 kr gjaldi. 

    Starfsfólk geymir vörurnar í 7 daga að hámarki en eftir þessa 7 daga eru vörurnar í eigu bás 33. Sæki básaleigjandi ekki vörurnar sínar verða gjöld dregin af söluhagnaði áður en hann er greiddur til básaleiganda. 

    Lúxus básaleiga: Þú hefur allt að viku til að sækja vörurnar þínar eftir að básaleigu lýkur, án gjalds. Við tökum niður básinn fyrir þig og geymum vörur í allt að 7 daga án gjalds.

  • Söluhagnaður

    Þegar básaleigu er lokið og þú hefur sótt vörurnar þínar sem eftir eru, ferð þú á útborgunarlista og færð greitt í síðasta lagi eftir 3 virka daga. Mikilvægt er að skrá bankaupplýsingar inn á "mínum síðum" svo hægt sé að greiða út söluhagnað. Eingöngu verður greitt út með millifærslu í heimabanka. Básaleigjandi með Almenna þjónustu greiðir 25%/22% þóknun og básaleigjandi með Lúxus þjónustu greiðir 40% þóknun. Básaleigjandi sér sinn hagnað undir “minn hagnaður” á sínu svæði.

  • Persónuverndarstefna

    Fyrirtækið skilur og virðir mikilvægi einkalífs á Internetinu, og því mun það ekki gefa upp upplýsingar um viðskiptavini/notendur til þriðja aðila, nema nauðsynlegt sé að framkvæma ákveðin viðskipti.

    Fyrirtækið mun ekki selja nafnið þitt, netfang, kreditkort eða persónuleg gögn til þriðja aðila án samþykki þíns. Lög og varnarþing- Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög.

    Komi upp ágreiningur eða krafa á bás 33 á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.