Niðurtekt á bás - Almenn leiga
Kæri bása leigjandi,
Nú er básaleigu þinni að ljúka sjá bókun á (Mínar síður)
Almenn leiga
Í lok básaleigu, á síðasta degi sölu, kemur þú til að ganga frá básnum þínum og sækja vörur sem eftir eru. Mán-Fös kemur þú í síðasta lagi klukkan 17:00 en klukkan 15:00 um helgar eða á rauðum dögum.
Næsti básaleigjandi á rétt á básnum klukkustund fyrir lokun daginn áður en hans básaleiga hefst. Mikilvægt er að þú gefir þig fram við starfsmann í afgreiðslu og látir vita að þú sért að tæma bás. Vinsamlegast hafið skilríki meðferðis. Starfsfólk leiðbeinir básaleigjanda um niðurtekt en mikilvægt er að passa uppá að taka ekki óvart vörur frá öðrum sem gætu hafa ratað á básinn þinn. Þjófavarnir þarf að fjarlægja við afgreiðsluborð.
Komist þú ekki á tilsettum tíma er hægt að semja við starfsfólk bás 33 fyrir klukkan 16 daginn sem básaleigu lýkur, um að tæma bás fyrir leigjanda gegn 3000 kr gjaldi. Hægt er að sækja um þessa þjónustu með því að senda tölvupóst á bas33@bas33.is. Ef ekkert er um samið, tekur starfsfólk bás33 niður básinn gegn 5000 kr gjaldi.
Starfsfólk geymir vörurnar í 7 daga að hámarki. Eftir þessa 7 daga eru vörurnar í eigu bás33.
Sæki básaleigjandi ekki vörurnar sínar verða þessi gjöld (taka niður bás) dregin af söluhagnaði áður en hann er greiddur til básaleigjanda.
Viðskiptavinir sem vilja gefa óseldar vörur geta látið bás33 vita með því að senda tölvupóst áður en básaleigu lýkur. Söluhagnaður af ósóttum vörum og vörum sem enda sem eign bás33 verða gefnar til góðgerðarsamtaka.
Til þess að við getum greitt þér út þinn söluhagnað verður þú að skrá inn réttar bankaupplýsingar.
Bankaupplýsingar má skrá með því að fara inn á notenda stillingar þínar á "Mínar Síður" og slá þar inn banka, höfuðbók og reikningsnúmer. Við leggjum inn þinn söluhagnað að frádreginni söluþóknun okkar (25% eða 40% í lúxusleigu) á þinn reikning.
Greitt er út á innan við viku eftir að leigutímabilinu er lýkur.
Kær kveðja bás33