Uppsetning - Lúxusleiga

Kæri básaleigjandi,

Nú er komið að því að fara að setja upp básinn þinn. Þú átt bókaðan bás þann: Sjá bókun (mínar síður)

Þú hefur kost á því að ákveða hvað hver vara eigi að kosta. Þá ferðu inná „Mínar síður“ og skráir vörur með góðri lýsingu, stærð og verð t.d. “Blá Ralph Lauren skyrta M 10.000 kr.”. Þú mátt skrá einhverjar vörur þó þú skráir ekki allar. Við sjáum þá um að skrá restina.

Annar möguleiki er að setja vörur sem eiga að vera á sama verði í sér poka/kassa og merkja t.d. 8 flíkur saman 6000kr hver vara, 14 flíkur 12.000kr hver vara.

Þriðji möguleikinn er að starfsfólk ákveði verðlagningu á vörunum þínum. Ef að þú ákveður að við verðleggjum vörurnar þá veitir þú okkur skilyrðislaust leyfi til að ákveða verð á hverja vöru. Þú verður að senda okkur tölvupóst á bas33@bas33.is um hvaða leið á verðlagningu þú velur. 

Þú annað hvort skutlar vörunum til okkar á Smiðjuvelli 32 ef þú hefur tök á því eða sendir þær með póstinum eða einhverjum sem á leið hjá. 

Við setjum verðmiða og þjófavarnir(yfir 2.500kr) á vörurnar, komum vörum snyrtilega fyrir á básnum þínum, fyllum á básinn reglulega, tökum til daglega, tökum niður bás í lokin, pökkum vörum og geymum í allt að 7 daga án gjalds. Þú þarft að nálgast vörurnar sem eftir eru hjá okkur á þessum 7 dögum eða hafa samband við okkur í tölvupósti og við finnum góða lausn saman.

Á meðan á leigu stendur getur þú fylgst með sölunni þinni á “mínum síðum”, bætt við vörum eða fjarlægt þær eins og þér hentar. Í Lúxusleigu verður þú að senda okkur tölvupóst ef þú vilt að við fjarlægjum vöru af básnum þínum eftir að þú hefur fjarlægt hana úr kerfinu. Sömuleiðis ef þú vilt bæta við vörum þarft þú að koma þeim til okkar.


Kær kveðja bás33